07.10 2011

Handgerð silfurslaufa úr Hafnarfirði

Ingi í Sign og Bleika slaufanSigurður Ingi Bjarnason, gullsmiður hjá Sign í Hafnarfirði, hannar silfurútgáfu Bleiku slaufunnar sem Leonard selur í ár til ágóða fyrir Krabbameinsfélagið. Fjallað var um silfurútgáfuna í Bleika slaufu blaði Krabbameinsfélags Íslands sem kom út þann 6. október. 

Ingi sér sjálfur um framleiðsluna þannig að hvert eintak er einstakt og fjöldinn þar af leiðandi takmarkaður. Slaufan verður aðeins seld í verslunum Leonard í Kringlunni, Smáralind, Lækjargötu og Leifsstöð.

Ingi í Sign segist hafa haft í huga að slaufan gæti nýst við sem flest tækifæri jafnframt því að vekja athygli á góðu málefni. Á slaufunni eru fimm bleikir steinar. „Þeir eiga að vera tákn vonarinnar um fimm einkennalaus ár, sem oft er miðað við þegar rætt er um að læknast af sjúkdómnum,“ segir Ingi. „Hrjúf áferð slaufunnar, þar sem kalt mætir heitu, er auk þess að kallast á við íslenska náttúru og aðstæður, skírskotun í þá erfiðleika, óvissu, sorg og auðvitað gleði, sem lífið getur boðið upp á.“

Leonard mun einnig selja sérstaka útgáfu af bleikum leðurarmböndum frá Sif Jakbos, til ágóða fyrir Krabbameinsfélagið.


Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Sigríður Snæbjörnsdóttir






Skipta um leturstærð


Leit