
Grein um íbúðir Krabbameinsfélags Íslands við Rauðárstig. Greinin birtist í
Bleika slaufu blaðinu sem var dreift með Fréttablaðinu þann 6. október.
Fyrir tuttugu árum keyptu Krabbameinsfélagið og Rauði krossinn tvær íbúðir í Reykjavík fyrir fólk sem kom utan af landi og fór í meðferð við krabbameini. Þörfin var svo mikil að nú eru íbúðirnar orðnar átta, allar við Rauðarárstíg.
Steinunn Friðriksdóttir hefur séð um íbúðamálin fyrir Krabbameinsfélagið frá upphafi. "Þá áttu margir sjúklinganna að vísu ættingja í bænum en þeim fannst óþægilegt að setjast upp hjá þeim í langan tíma og hóteldvöl var of dýr," segir hún. "Það var því mikið framfaraspor þegar ákveðið var að kaupa fyrstu íbúðirnar og stuðningur Rauða krossins var ómetanlegur."
Sex íbúðanna eru eign Krabbameinsfélags Íslands og Rauða kross Íslands, ein er eign félagsins og Hússjóðs Öryrkjabandalagsins og ein eign félagsins og Styrktarsjóðs Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Allar íbúðirnar eru vel búnar húsgögnum og tækjum.
"Sjúklingarnir eru mjög þakklátir fyrir að geta dvalið í ró og næði í íbúðunum og oftast eru aðstandendurnir með," segir Steinunn. "Það skiptir miklu máli hvernig fólki líður í meðferðinni og að geta haft hjá sér einhvern sem manni þykir vænt um til að geta deilt með gleði og sorg."
Landspítalinn sér um rekstur íbúðanna og úthlutun þeirra. Nánari upplýsingar eru veittar í síma 543 6800 eða 543 6801. Leigugjaldið er 1.600 krónur fyrir hvern dag. Mörg krabbameinsfélög á landsbyggðinni endurgreiða kostnað sjúklinganna.