07.10 2011

Lífsnauðsynlegt að hreyfa sig

Katrín Jónsdóttir læknir og fyrirliði Í Bleika slaufu blaði Krabbameinsféalgs Íslands sem kom út með Fréttablaðinu þann 6. október var tekið viðtal við Katrínu Jónsdóttur lækni og fyrirliða íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu. 

Katrín hefur í námi sínu og starfi kynnst gildi hreyfingar fyrir heilsuna, en á síðustu árum hafa verið birtar niðurstöður sífellt fleiri rannsókna sem sýna að heilbrigðir lífshættir bæta líðanina og draga úr líkum á ýmsum sjúkdómum, meðal annars krabbameinum.

Hefur þú stundað íþróttir frá unga aldri? 
Já, ég byrjaði í fimleikum fimm ára gömul og svo í fótbolta átta ára.

Skiptir það ekki miklu máli fyrir árangur í íþróttum að lifa heilbrigðu lífi?
Jú, það skiptir heilmiklu máli. Að borða hollan og fjölbreyttan mat og fá nægan svefn eru mikilvægir þættir í að ná langt. Svo er að sjálfsögðu bannað að reykja!

Hvað er æskilegt að fólk hreyfi sig mikið í hverri viku?
Það er mjög gott að hreyfa sig daglega. Hvaða tegund hreyfingar, hversu mikil og hversu erfið hreyfingin á að vera fer eftir heilsu, aldri og markmiðum einstaklingsins. Það er til dæmis mikill munur á æskilegri hreyfingu fyrir afreksíþróttamann og manneskju með alvarlegan hjartasjúkdóm.

En hvað segir þú um mataræðið?
Það er mikilvægt að borða holla og fjölbreytta fæðu, en einnig þarf að passa upp á að borða hæfilega mikið. Afreksíþróttamaður þarf til dæmis að borða meira en manneskja sem hreyfir sig lítið. Það er ekki alltaf auðvelt að vita hvað er hollt og getur því stundum verið gott að tala við heimilislækninn sinn eða næringarráðgjafa og fá ráðleggingar.

Er samband á milli hreyfingarleysis og hættu á krabbameini?
Hreyfing er gríðarmikilvæg fyrir heilsuna. Rannsóknir hafa sýnt að með reglulegri hreyfingu er hægt að minnka líkur á fjölmörgum sjúkdómum, eins og til dæmis hjartasjúkdómum, offitu, sykursýki, stoðkerfisvandamálum, geðröskunum en einnig sumum tegunda krabbameina.

Hvaða skilaboðum vilt þú koma á framfæri við fólk um gildi heilbrigðs lífs?
Eins og ég sagði áðan er mikilvægt að hugsa um eigin heilsu með því að borða hollan mat, hreyfa sig reglulega, fá nægan svefn og forðast skaðvalda eins og reykingar. Hins vegar er mikilvægt að vera ekki of ýktur. Ef þú vilt taka þig á þarf að setja sér langtímamarkmið. Lífsstílsbreytingar eiga ekki að vera hraðar. Ég hef til dæmis allt of oft orðið vitni að því þegar fólk ætlar sér að léttast allt of hratt með fáránlegum matarkúr eða fer of geyst af stað með hreyfinguna og það fær fljótlega álagsmeiðsli. Hérna er þolinmæði lykilorð. Fagfólk eins og heimilislæknar, íþróttafræðingar og næringarráðgjafar geta verið til mikillar hjálpar.


Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Sigríður Snæbjörnsdóttir






Skipta um leturstærð


Leit