
Í
Bleika slaufu blaði Krabbameinsfélagsins sem kom með Fréttablaðinu þann 6. október var grein um orlofsdvöl á Eiðum.
Dagana 26.-28. ágúst 2011 var krabbameinsgreindum og aðstandendum boðið að koma og taka þátt í orlofshelgi að Eiðum á vegum Krabbameinsfélags Austfjarða og Krabbameinsfélags Austurlands. Í Kirkjumiðstöð Austurland var boðið upp á fræðslu, svæðanudd, gönguferðir, helgistund, samveru og fleira og nutu þátttakendur helgarinnar svo sannarlega.
Boðið hefur verið upp á orlofshelgi á Eiðum undanfarin fimm ár og síðustu tvö árin í samstarfi við Kraft, stuðningsfélag fyrir ungt fólk með krabbamein. Kraftur hefur boðið félögum sínum að fljúga austur ásamt sínum nánasta vini eða maka og taka þannig þátt í dagskránni þeim að kostnaðarlausu. Fólk sem er í meðferð eða hefur nýlokið henni hefur verið boðið sérstaklega velkomið. Auk þess er þetta góð leið til að brjóta upp hversdagsleikann með sínum nánustu, enda um einstaklega fallegt og róandi umhverfi að ræða. Að hvíldarhelginni lokinni sagði einn þátttakandinn: "Takk fyrir mig. Þetta er ferð sem var endurnærandi á sál og líkama og yndislegt að vera fyrir austan."