07.10 2011

Bleikt er litur október

Bleika slaufan 2011Í Bleika slaufu blaði Krabbameinsfélags Íslands sem fylgdi Fréttablaðinu þann 6. október var grein um átak krabbameinsfélagsins. 

Sex konur sem eiga það sameiginlegt að hafa barist við krabbamein fengu afhentar fyrstu Bleiku slaufurnar í ár við hátíðlega athöfn í húsnæði Krabbameinsfélagsins. Þessar sex konur eru áberandi í árveknis- og fjáröflunarátakinu og segja frá reynslu sinni af krabbameini í myndböndum á www.bleikaslaufan.is og eru einnig í prentauglýsingum og vefborðum.

Á hverju ári velur Krabbameinsfélagið eina byggingu á höfuðborgarsvæðinu til að lýsa upp í tilefni átaksins og var efsta hæð turnsins í Höfðatorgi lýst bleiku ljósi að þessu sinni. Það voru Verkís og Exton sem studdu Krabbameinsfélagið við lýsinguna, sem og Eykt, eignarhaldsfélag Höfðatorgs. 

Ýmis mannvirki hafa einnig verið lýst um land allt og má m.a. nefna álverið við Reyðarfjörð og Húsavíkurkirkju en einnig náttúrufyrirbæri sem heitir því skemmtilega nafni Bleiksárfoss og er á Eskifirði. Einnig hafa fyrirtæki um allt land tekið sig til og lýst byggingar sínar upp í tilefni af árveknismánuðinum. 

Lýsingin og átakið minnir alla landsmenn á baráttuna gegn krabbameinum hjá konum.

Bleika slaufan er í ár framleidd af konum í Zulufadder-þorpum í Suður-Afríku og styrkti DHL Krabbameinsfélagið með flutningi slaufunnar til Íslands.


Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Sigríður Snæbjörnsdóttir






Skipta um leturstærð


Leit