07.10 2011

Bleikur föstudagur

Jón Sigurðsson á bleikum degi Bleikur föstudagur var haldinn 7. október 2011 um land allt. Fjölmörg fyrirtæki, félagasamtök, skólar og leikskólar tóku þátt í deginum og sköpuðu bleika stemmningu hjá sér. 

Október er mánuður Bleiku slaufunnar, árveknis- og fjáröflunarátaks Krabbameinsfélags Íslands gegn krabbameinum hjá konum.

Af því tilefni hvatti Krabbameinsfélagið landsmenn alla til að klæðast einhverju bleiku föstudaginn 7. október eða hafa bleikan lit í fyrirrúmi þann dag og sýna þannig samstöðu í baráttunni.

Bleiki dagurinn naut mikilla vinsælda á síðasta ári sem og í ár  - ekki síst á vinnustöðum þar sem fjöldinn allur brá á leik, haldnar voru keppnir um skemmtilegasta klæðaburðinn og mikið gaman hlaust af. 

Fjölmargar skemmtilegar myndir hafa borist Krabbameinsféalginu  og má sjá þær hér og hér


Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Sigríður Snæbjörnsdóttir






Skipta um leturstærð


Leit