Hvatning frá Stjórn Krabbameinsfélags Íslands í Bleika slaufu blaði Krabbameinsfélagsins þann 6. október 2011.
Við hvetjum alla Íslendinga til að leggja baráttunni gegn krabbameinum kvenna lið nú í október. Við bendum á að ár hvert greinast krabbamein hjá á sjöunda hundrað íslenskum konum ár hvert, þar af greinast nær tvö hundruð með brjóstakrabbamein. Dánartíðni hefur farið lækkandi og lífshorfur og lífsgæði batnað. Enn má þó gera betur.
Krabbameinsfélagið sinnir þekkingaröflun og þekkingarþróun, forvörnum, meðal annars leit að krabbameinum á byrjunarstigi, veitir ráðgjöf og stuðning og beitir sér fyrir hagsmunum og réttindum sjúklinga.
Við tvinnum saman árvekni og fjáröflunarátak í þessum mánuði og treystum á stuðing þinn. Þitt framlag nýtist vel til góðra verka.
Stjórn Krabbameinsfélags Íslands.