
Blómabúðin Burkni í Hafnarfirði ætlar að leggja Bleiku slaufu átaki Krabbameinsfélags Íslands lið með því að allur ágóð af sölu bleikra rósa í október rennur til félagsins.
„Við þekkjum flest einhvern sem greinst hefur með krabbamein og fannst okkur því tilvalið að taka þátt í baráttunni með því að selja það sem er sérgrein okkar, blóm, til styrktar Krabbameinsfélaginu“, sagði Brynhildur verslunarstjóri Burkna.
„Blómabúðin verður einnig lýst upp með bleikum ljósum í október og mun því ilmurinn og ljósin fá viðskiptavini til að svífa um á bleiku skýi,“ bætir hún við brosandi.