
Þegar starfsfólk Krabbameinsfélagsins mætti til vinnu í vikunni blasti við þeim þessi skemmtilega sjón en búið var að prjóna bleik brjóst utan um ljósastaur fyrir utan höfuðstöðvar Krabbameinsfélagsins í Skógarhlíðinni.
Enginn hér veit hver prjónaði gjörninginn en skemmtilegur er hann og er túlkaður sem frumlegur stuðningur við átak bleiku slaufunnar sem nú stendur yfir.