30.09 2011

Bleika slaufan 2011 afhent sex hvunndagshetjum

Bleika slaufan 2011 afhendFræðsla er lykilatriði í baráttu gegn krabbameini:

Bleika slaufan í ár perluð af Zúlú-konum

  • Frú Vigdís Finnbogadóttir afhendir sex hvunndagshetjum fyrstu bleiku slaufurnar
  • Slaufurnar perlaðar af Zúlú-konum í Suður-Afríku: Mikil búbót fyrir þorp sem samanstanda af „ömmum“ sem sjá fyrir fjölda barna
  • Allur ágóði átaksins fer til styrktar starfsemi Krabbameinsfélags Íslands

Bleika slaufan, árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélags Íslands, hefst formlega á morgun, laugardaginn 1. október 2011, og hefur félagið einsett sér að selja 50 þúsund slaufur fram til 15. október. Að þessu sinni var valin sú leið að fá „ömmur“ í Zúlúþorpum Suður-Afríku til að perla bleikar slaufur fyrir átakið en þær sjá einar fyrir fjölda barna. Verndari Krabbameinsfélagsins, frú Vigdís Finnbogadóttir, afhenti sex hvunndagshetjum fyrstu slaufurnar við athöfn hjá Krabbameinsfélaginu í dag en þær segja sögu sína í myndböndum sem birtast á heimasíðu Krabbameinsfélagins, www.bleikaslaufan.is  og víðar í októbermánuði.

Hvunndagshetjurnar eru allar venjulegar konur, en á hverjum degi berst fjöldi kvenna við krabbamein. Þær hafa þurft að horfast í augu við erfiðan sjúkdóm og hafa sýnt mikið hugrekki í baráttu sinni. Við hlið hverrar konu standa ættingjar og vinir sem taka þátt í þessari erfiðu reynslu og eru landsmenn allir því hvattir til að kaupa bleiku slaufuna.

Hvunndagshetjur á Íslandi

„Í október leggjum við aukna áherslu á krabbamein kvenna. Við beitum okkur á mjög mörgum sviðum, s.s. í forvörnum og fræðslu, leit að krabbameinum á for- og frumstigi, ráðgjöf og stuðningi, rannsóknum, styðjum framfarir í meðferð og umönnun og tökum þátt í hagsmunabaráttu sjúklinga og aðstandenda þeirra, svo fátt eitt sé nefnt,“ segir Ragnheiður Haraldsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélags Íslands. „Árvekniátök síðustu ára hafa skipt sköpum fyrir starfsemi Krabbameinsfélagsins og til að mynda tókum við á móti 20.000 konum í krabbameinsleit á síðasta ári – bæði í Leitarstöðinni í Skógarhlíð og á ferðum okkar um landið. Átakið veitir okkur einnig gott tækifæri til að kynna konum ýmsar leiðir til að hafa áhrif á heilsuna.“

Hvunndagshetjur í Suður-Afríku

Með kaupum á bleiku slaufunni í ár styður fólk ekki einungis starf Krabbameinsfélagsins því framleiðsla slaufunnar hefur að auki skapað atvinnu og tekjur fyrir fátækar barnafjölskyldur í Suður-Afríku. Hér er því um tvöfaldan ávinning að ræða.

„Í ár fengum við „ömmur“ af Zúlú ættbálkum í Suður-Afríku til að perla fyrir okkur slaufuna. Í þessum þorpum hefur í raun heil kynslóð horfið sökum alnæmis, og hvílir það því á herðum eldri kvenna að sjá fyrir jafnvel 12-14 börnum hver,“ segir Ragnheiður. Í þorpunum starfa norsk hjálparsamtök, Zulufadder, sem hafa stofnað þar leikskóla, félagsmiðstöðvar, byggt hús og stutt við skóla og heilsugæslustöðvar. Það var á vegum þeirra samtaka sem bleika slaufan var unnin.

„Við vorum svo heppin að Margrét Jónsdóttir og Elísabet Haraldsdóttir buðu sig fram til að ferðast til Suður-Afríku á eigin kostnað og kynna sér starf samtakanna og heimsækja þorpin. Með því gátum við fullvissað okkur um að launin fyrir bleiku slaufuna færu beint til þeirra kvenna sem unnu hana en ekki í einhverja yfirbyggingu eða í vasa milliliða. Margrét og Elísabet mættu gríðarlegri velvild og góðmennsku og komu heim reynslunni ríkari eftir að hafa kynnst þessum duglegu konum. Margar þessara kvenna eru í fyrsta sinn að fá greitt fyrir vinnu sína í peningum og launin munu nýtast vel til kaupa á hænsnum og geitum, fatnaði og mat.“

Söluaðilar bleiku slaufunnar

Bleika slaufan kostar aðeins 1.500 krónur og verður til sölu dagana 1.-15. október hjá eftirtöldum söluaðilum sem selja slaufuna án álagningar:

Apótek: 
Rima Apótek, Reykjavíkur Apótek, Lyfja, Garðsapótek, Lyfjaval, Lyfjaver, Lyf og heilsa, Lyfjaborg og Árbæjarapótek. 
 
Verslanir og afgreiðslustöðvar: 
Krabbameinsfélagið, IÐA, Fríhöfnin, Garðheimar, Kvennadeild Rauða Krossins, Blómahönnun, Misty, ITA gallery, Melabúðin, Frumherji, Olísstöðvar um land allt, Einar Farsveit, Kaupfélag Steingrímsfjarðar, Miðbúðin, Heilsuhúsið, Eymundsson, Nóatún, Kjarval, Krónan, 11-11, Debenhams, Íslandspóstur, Hagkaup, Blómabúðin Dögg, Leonard, Hrím, Radison Blu 1919 hotel, Belladonna (Stella Leifsdóttir), Samkaup, Burkni blómabúð og Stúdíóblóm-runni blómabúð.  

Hjúkrunarheimili: 
Hrafnista Laugarás, Hrafnista Hafnarfirði og Mörk hjúkrunarheimili.  

Leigubifreiðar: 
Hreyfill.  

Kaffihús: 
Kaffitár og Te & kaffi.  

Á netinu: 

Dreifingaraðilar: 
Parlogis (sími 590-0200) og Krabbameinsfélagið (540 1900)


Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Sigríður Snæbjörnsdóttir






Skipta um leturstærð


Leit