23.09 2011

Bleikur poki til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands

Krabbameinsfélag Íslands og Plastprent undirrituðu samstarfssamning á dögunum er lýtur að stuðningi Plastprents við Bleiku slaufuna og Krabbameinsfélagið með sölu á BLEIKA POKANUM. Samningurinn felur í sér að allur ágóði af sölu BLEIKA POKANS rennur óskiptur til stuðnings Krabbameinsfélaginu í baráttunni gegn krabbameinum hjá konum.

BLEIKI POKINN  verður til sölu hjá Plastprent frá 1. september til 31. október.

Allar nánari upplýsingar um BLEIKA POKANN veitir söludeild Plastprents.

Laila Sæunn Pétursdóttir fær pokann afhendan
Laila Sæunn Pétursdóttir, markaðs- og fjáröflunarstjóri Krabbameinsfélagsins, fékk í dag afhentan fyrsta BLEIKA POKANN frá Salvör Davíðsdóttir fyrir hönd Plastprent.



Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Sigríður Snæbjörnsdóttir






Skipta um leturstærð


Leit