20.09 2011

Vaxandi útgjöld vegna krabbameins á næstu árum

Rannsókn sem gerð var fyrir Norræna krabbameinssambandið, NCU, sýnir að heilbrigðisútgjöld vegna krabbameina á Norðurlöndum voru 3,3 milljarðar evra árið 2007 eða 130 evrur á hvern íbúa. Áætlað er að árið 2025 hafi útgjöldin hækkað um 28%. Árið 2007 höfðu rúmlega 900.000 íbúar norrænu landana, sem þá voru á lífi, greinst með krabbamein, þar af nær 390.000 á síðustu fimm árum. 

Á fundi hjá Norræna krabbameinssambandinu í Stokkhólmi var sagt að mikilvægt væri að bregðast við þessum staðreyndum vegna þess að krabbamein leggðu þungar byrðar á sjúklinga og fjölskyldur þeirra, sem og samfélagið í heild. Sú staðreynd að fleira fólk mun greinast og lifa með krabbamein á komandi árum kallar á aukin framlög til þessa málaflokks. Þá var lögð áhersla á að stjórnvöld norrænu landanna yrðu að marka heildstæða stefnu um sókn gegn krabbameinum, ekki síst varðandi forvarnir.
 
SINTEF Technology and Society í Þrándheimi vann þessa rannsókn fyrir Norræna krabbameinssambandið, NCU, en það er samstarfsvettvangur krabbameinsfélaga í Danmörku, í Finnlandi, í Færeyjum, á Íslandi, í Noregi og í Svíþjóð.

Hægt er að hlaða niður skýrslunni hér.


Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Sigríður Snæbjörnsdóttir






Skipta um leturstærð


Leit