Velferðarráðherra hefur tilkynnt að frumvarp um breytingar á greiðsluþátttöku ríkisins í lyfjakostnaði verði tekið til endurskoðunar í velferðarráðuneytinu og að umsagnir um frumvarpið, sem borist hafa heilbrigðisnefnd Alþingis, verði skoðaðar ofan í kjölinn. Stefnt er að því að leggja endurskoðað frumvarp fyrir Alþingi á haustþingi og þess vænst að það geti orðið að lögum fyrir áramót.
Krabbameinsfélag Íslands fagnar þessari ákvörðun því hún er í samræmi við óskir félagsins. Með þessu verklagi gefst tími til að skerpa á texta frumvarpsins þannig að markmið lagasetningarinnar náist. Félagið lýsir sig reiðubúið til samstarfs við ráðuneytið um endurskoðunina.
Grein Guðbjarts Hannessonar velferðarráðherra í Fréttablaðinu 13. september 2011.