Hönnuðurinn Sigga Heimis, stóð fyrir uppboði nýverið á glerlistaverkum sem höfðu verið á sýningu á Menningarnótt í ár. Glerlistaverkin voru blásin sem hin ýmsu líffæri mannsins og voru tvö glerblóðkorn boðin upp til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands.
Það voru Lovísa Jóhannsdóttir og Árni Oddur Þórðarson fyrir hönd Eyrir sem buðu hæst í blóðkornin og hrepptu sitthvort á 85.000 krónur. Aðstandendur Krabbameinsfélags Íslands þakkar þeim sem og Siggu Heimis innilega fyrir stuðninginn.
Sjá nánar um uppboðið
hér.
F.v. Sigga Heimis, Laila Sæunn Pétursdóttir (markaðsstjóri Krabbameinsfélags Íslands), Árni Oddur Þórðarson, Lovísa Jóhannsdóttir sem og fulltrúar og hæstbjóðendur í verk til styrktar Umsjónarfélags einhverfa og Hjartavernd.