07.09 2011

Gunnar hljóp samtals 272,1 km

Gunnar Ármannsson sem í sumar hljóp fimm áheitahlaup til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands safnaði í heildina 732.500 krónum. Gunnar hljóp samtals 272,1 km í um 23 tíma og er þetta alveg hreint ótrúlegur árangur. 

Gunnar greindist með hvítblæði árið 2005 og sumarið 2006 lauk hann lyfjameðferð. Til að byggja upp líkamlegt þol sitt eftir hana tók hann upp hlaup og nú er hann farinn að hlaupa maraþon. Í tilefni af því að í sumar voru liðin fimm ár síðan hann lauk lyfjameðferðinni ákvað hann að hlaupa fimm áheitahlaup til að minna á starfsemi Krabbameinsfélagsins. 

Gunnar hljóp Parísarmarþonið (42,2 km) á um 2:55 klst., 100 km hlaup á 8:52 klst, Laugavegshlaupið (55 km) á 5:52 klst., Jökulsárhlaupið (32,7 km) á 2:38 klst. og loks Reykjavíkurmaraþonið 42,2 km) á 3:15 klst.  Í heildina gerir þetta 272,1 km á tæpum sólarhring. „Þetta var að sjálfsögðu erfitt en á sama tíma mjög gaman og gott að stefna á svona. Ég tel að með þessu hafi ég vakið athygli á hvað hreyfing er mikilvæg og sama þó maður greinist með krabbamein á maður möguleika að lifa með því og setja sér ýmis markmið og standa við þau. Annað lærið var til dæmis farið að stríða mér mikið í síðasta hlaupinu en ég hljóp það samt og var harðákveðinn að klára það hlaup og klára þar með áheitahlaupin til styrktar Krabbameinsfélaginu þó að ég hefði þurft að labba alla leiðina“, segir Gunnar brosandi. 

Krabbameinsfélagið þakkar Gunnari og stuðningsaðilum hans innilega fyrir. 

Gunnar Ármannsson og Ragnheiður Haraldsdóttir hjá Krabbameinsfélagi Íslands
Gunnar Ármannsson og Ragnheiður Haraldsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélags Íslands




Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Sigríður Snæbjörnsdóttir






Skipta um leturstærð


Leit