18.08 2011

Fimmta hlaupið af fimm til styrktar Krabbameinsfélaginu

Gunnar Ármannsson hleypur á laugardaginn í Reykjavíkurmaraþoninu, fimmta hlaupið í áheitahlauparöðinni til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands. Í vor og sumar hefur Gunnar hlaupið fjögur hlaup til styrktar Krabbameinsfélaginu undir slagorðinu „Ég hleyp af því ég get það“. 
Gunnar Ármannsson hleypur fyrir Krabbameinsfélagið Gunnar greindist með hvítblæði á Þorláksmessu árið 2005 og eru nú um 5 ár síðan hann lauk lyfjameðferð og ákvað hann því að hlaupa fimm áheitahlaup til styrktar félaginu. Áheitahlaupin sem búin eru hafa verið hvert með sínu sniði; Parísarmaraþonið, 100 km  hlaupið, Laugavegurinn, Jökulsárhlaupið og nú loks Reykjavíkurmaraþonið. 

Hægt er að lesa um reynslu Gunnars og hugleiðingar hans á bloggsíðunni hans http://garmur.blog.is/blog/garmur/entry/1185313/. 

Núþegar hafa margir lagt málefninu lið og styrkt átakið með því að leggja inná söfnunarreikning félagsins 0301-26-102005, kt. 700169-2789 og inn á http://www.hlaupastyrkur.is/hlaupid/keppandi?cid=2136 . 

Krabbameinsfélagið óskar Gunnari velgengis í hlaupinu og þakkar honum sem og öllum stuðningsaðilum hans innilega fyrir stuðninginn. 


Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Sigríður Snæbjörnsdóttir






Skipta um leturstærð


Leit