Arnar Vilhjálmsson hleypur 10 kílómetra á hækjum til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands í Reykjavíkurmaraþoninu.
Arnar hefur verið hreyfihamlaður frá fæðingu og hefur alltaf þurft að styðjast við hækjur. Arnar hóf að æfa sig fyrir hlaupið i janúar en hann ákvað á menningarnótt í fyrra að láta verða af því að hlaupa 10 kílómetrana í ár.
Faðir Arnars lést af völdum krabbameins í fyrra og Arnar segir að málefnið sé styrk út af því að þetta hafi snert fjölskyldu hans mikið. Sjá viðtal við Arnar í Víkurfréttum
hér.