Reykjavíkurmaraþonið verður haldið laugardaginn, 20. ágúst nk. og ætla margir að láta Krabbameinsfélag Íslands eða aðildarfélög þess njóta góðs af áheitum í tengslum við hlaupið. Krabbameinsfélagið
Krabbameinsfélagið hvetur sem flesta til að standa með þessum hlaupurum og heita á þá á vefnum
hlaupastyrkur.is
Hér er hægt að heita á þá sem hlaupa til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands.
Gerð hafa verið sérstök merki sem hlaupararnir geta límt á boli sína. Merkin verða afgreidd föstudaginn 19. ágúst á bási Krabbameinsfélags Íslands í Laugardalshöllinni.
Gangi ykkur vel og takk fyrir stuðninginn