Reykjavíkurborg bauð Kastað til bata hópnum í veiði í Elliðaárnum laugardaginn 21. júlí 2011. Kastað til bata er verkefni þar sem konum sem lokið hafa meðferð við brjóstakrabbameini er boðið í veiðiferð. Í ár var farið í Sogið en í fyrrasumar í Laxá í Laxárdal.
Kastað til bata er samstarfsverkefni Samhjálpar kvenna, Krabbameinsfélags Íslands, og styrktaraðila félagsskapur konum sem lokið hafa meðferð við brjóstakrabameini er boðið í veiðiferð, kvenna sem hafa fengið brjóstakrabbamein og farið í brjóstnám. Þær æfa sig í flugukasttækni og stunda veiðiskap og útiveru til að styrkja sig á sál og líkama, njóta samvista við veiðifélaga með svipaða reynslu og veiða, ef heppnin er með. vöðvana í kringum brjóstin.
Ásdís Káradóttir, hjúkrunarfræðingur hjá Krabbameinsfélaginu, hefur haft veg og vanda að verkefninu námskeiðum undir þessum formerkjum en fyrirmyndin er sótt til Kanada. Kastað til bata hópur fór í fyrrasumar í Laxá í Laxárdal, S-Þingeyjarsýslu og í ár við Sogið. Hafa 28 konur tekið þátt í verkefninu.
Reykjavíkurborg auglýsti fyrir skömmu eftir ábendingum að hvunndagshetjum sem ættu skilið að fá að veiða í Elliðaánum. Borgin á fimm veiðidaga í ánum á hverju sumri og verður dugmiklum borgarstarfsmönnum og hvunndagshetjum á borð við konurnar í Kastað til bata boðið að njóta þess að veiða í ánum nú í vikunni og í næstu viku.
Leiðsögumenn frá Stangaveiðifélagi Reykjavíkur aðstoðuðu Kastað til bata hópinn við laxveiðarnar á morgun.