29.06 2011

Reglubundin skimun getur sparað miklar fjárhæðir.

Ásgeir Theodórsson um ristilkrabbamein og skimunÍ viðtali á Stöð 2 þann 28. júní 2011 greinir Ásgeir Theodórsson, sérfræðingur í meltingarsjúkdómum, frá því að reglubundin skimun fyrir krabbameini í ristli og endaþarmi myndi spara þjóðarbúinu miklar fjárhæðir á ári hverju.

Krabbamein í ristli og endaþarmi hefur aukist mikið síðustu 50 ár eða þrefaldast hjá körlum og tvöfaldast hjá konum og búist er við áframhald aukningu. Einkenni koma ekki fram fyrr en á seinni stigum sjúkdómsins og því leita sjúklingar sér oftast hjálpar of seint. Meðferð vegna sjúkdómsins kostar íslenska heilbrigðiskerfið um einn milljarð króna á ári. En auðvelt er að finna sjúkdóminn með einfaldri skimun og lækna hann á forstigum.

Ásgeir telur því mikilvægt að hefja reglubundna skimun hjá þeim sem komnir eru yfir fimmtugt og hjá þeim sem eru í áhættuhópi. Samkvæmt greiningu myndi það kosta á bilinu 60 - 80 milljónir að skima Íslendinga á aldrinum 60 til 70 ára og því þó nokkur sparnaður í því til lengri tíma litið. 

Sjá viðtalið hér. 




Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Sigríður Snæbjörnsdóttir






Skipta um leturstærð


Leit