27.06 2011
Krabbameinsfélag Íslands er 60 ára í dag
Á þessum degi, 27. júní, árið 1951 var Krabbameinsfélag Íslands stofnað. Stofnfundurinn var haldinn í húsi Rannsóknastofu Háskólans við Barónsstíg. Á fundinum voru fjórir karlar og þrjár konur, fulltrúar frá krabbameinsfélögum í Reykjavík, Hafnarfirði og Vestmannaeyjum. Þar voru lög félagsins samþykkt og kosin stjórn. Níels Dungal varð formaður og gegndi því embætti þar til hann lést árið 1965.
Í dag verður sérstakur hátíðarfundur stjórnar Krabbameinsfélags Íslands að Skógarhlíð 8.