15.06 2011
Rætt um faraldsfræði og heilbrigðisskrár á norrænu þingi
Krabbameinsfélagið er einn af styrktaraðilum fimmtu norrænu ráðstefnunnar um faraldsfræði og heilbrigðisskrár, sem haldin er í Háskóla Íslands 15.-16. júní á vegum Faralds- og líftölfræðifélagsins.
Fjölmörg erindi verða flutt á ráðstefnunni, þar sem megináhersla er á eflingu samstarfs og aukna samræmingu norrænna heilbrigðisskráa svo enn betur sé hægt að nýta þessa einstöku auðlind til öflugra rannsókna í þágu bættrar lýðheilsu. Einnig verður fjallað um niðurstöður faraldsfræðirannsókna um krabbamein, hjarta- og æðasjúkdóma, æxlunarfræði og geðsjúkdóma, auk lyfjafaraldsfræði. Í tengslum við ráðstefnuna eru haldin tvö tölfræðinámskeið. Sérstök vinnusmiðja verður á ráðstefnunni, styrkt af NordForsk.
Vefsíða ráðstefnunnar: http://www.fltf.is/nordicepi/