
Gunnar Ármannsson sem greindist með hvítblæði árið 2005 hleypur á morgun annað hlaupið af fimm til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands. Á morgun, 11. júní 2011, mun hann taka þátt í Íslandsmeistarahlaupinu í 100 km hlaupi sem félag 100 km hlaupara stendur fyrir.
Hlaupið hefst kl. 7:00 og lýkur því eigi síðar en kl. 20:00. Þátttakendur hafa að hámarki 13 klst. til að ljúka hlaupinu. Hlaupið hefst við „Kafarahúsið“ í Nauthólsvík og liggur leiðin út á Ægissíðu að snúningspunkti sem þar verður merktur. Hlaupararnir hlaupa síðan brautina þar til 100 km vegalengd verður náð.
Gunnar hleypur undir einkunnarorðunum:
„Ég hleyp – af því að ég get það!“. Hægt er að heita á Gunnar með því að leggja inn á
reikningsnúmerið 0301-26-102005 kt. 700169-2789.
Sagan hans Gunnars:
„Ég greindist með hvítblæði á Þorláksmessu árið 2005. Þann 23. desember sl. voru 5 ár liðin og af því tilefni setti ég saman pistil og birti á bloggsíðu minni. Ég hef fengið nokkrar fyrirspurnir í þessi ár en ekki tjáð mig mikið um þessa upplifun opinberlega fyrr en nú. Þar sem í sumar eru 5 ár liðin frá því ég lauk lyfjameðferð hef ég ákveðið að gera eitthvað sérstakt”, segir Gunnar Ármannsson sem ætlar að hlaupa fimm hlaup til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands.
Þegar Gunnar varð 41. árs ákvað hann að hefja reglulegar hlaupaæfingar. Nú er hann farinn að hlaupa maraþon. Á afmælisdaginn, 10. apríl, hljóp hann Parísarmaraþonið, 42,2 km. Þann 11. júní ætlar hann að hlaupa 100 km í Meistaramóti Íslands, þriðja hlaupið verður Laugavegurinn þann 16. júlí sem er 55 km utanvegahlaup, fjórða hlaupið verður Jökulsárhlaup þann 6. ágúst sem er 32,7 km utanvegahlaup og lýkur hann síðan átakinu sínu þann 20. ágúst með þátttöku í Reykjavíkurmaraþoninu 42,2 km.
Gunnar ætlar að hlaupa til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands og geta einstaklingar og fyrirtæki heitið á hann með því að leggja inn á reikningsnúmerið 0301-26-102005 kt. 700169-2789. „Það er von mín að einhverjir finni hjá sér hvatingu og finni fyrir sömu tilfinningu – ég hleyp því ég get það. Að sjálfsögðu vona ég líka að fólk leggi félaginu lið með því að styrkja það með fjárframlögum. Markmið mitt er að safna 1.000.000 krónum,“ segir Gunnar. Mikið líkamlegt álag fylgir því að hlaupa fimm langhlaup á svona stuttum tíma og margt sem getur farið úrskeiðis, því skiptir hvatinn miklu máli.