Gunnar Ármannsson í viðtali hjá Malín Brand á
www.bleikt.is í tilefni af Heilsuhlaupi Krabbameinsfélagsins. Gunnar hann greindist með hvítblæði þegar hann var ekki orðinn fertugur og gerði sér þá grein fyrir að hann ætti e.t.v. ekki nægan tíma eftir til að hreyfa sig.
Af stað með þig!
Gunnar bendir á að fólk ætti að nota tímann og drífa sig af stað: „Meðan fólk getur,“ segir Gunnar. „Ég var einn af þeim sem hugsaði að krabbamein væri eitthvað sem henti aðra, ekki mig. Nú lít ég lífið öðrum augum og einkunnarorð mín eru að maður eigi að hreyfa sig á meðan maður getur.“
Nú á miðvikudagskvöld stendur Krabbameinsfélagið fyrir árlegu Heilsuhlaupi og hér er einmitt kjörið tækifæri til að drífa sig af stað.
Byrja hér!