06.06 2011

Bleika töltmótið til styrktar Krabbameinsfélag Íslands í samvinnu við Hestamanna félag Fák

Á konudaginn 20. febrúar sl. héldu Fáks hestakonur Bleikt Töltmót í Reiðhöllinni í Víðidagl. Mótið var haldið til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands. Skráningargjöld voru frjálst framlag og runnu þau óskert til styrktar rannsóknum á brjóstakrabbameini. 

Mótið var einungis fyrir konur og var aldurstakmark 17 ár. Fjölmargar konur sóttu mótið og voru hestarnir skreyttir á ýmsan hátt og margir með bleika borða. Völlurinn var einnig skreyttur bleikum blómum og voru bleikir dúkar og blóm á öllum dómaraborðum. 

Alls söfnuðust 458.160 krónur á mótinu og þakka aðstandendur Krabbameinsfélags Íslands hestakonunum innilega fyrir stuðninginn. 

Það voru þær  Drífa Dan, Laufey Stefánsdóttir og Auður Möller sem stóðu fyrir þessu góða framtaki fyrir hönd Fáks. 

Mynd: Laila Sæunn Pétursdóttir, markaðs- og fjáröflunarstjóri Krabbameinsfélags Íslands fær afhendan styrkinn frá Drífu Dan og Laufeyju. 


Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Sigríður Snæbjörnsdóttir






Skipta um leturstærð


Leit