
Í tilefni af 60 ára afmæli Krabbameinsfélagsins verður
Heilsuhlaup Krabbameinsfélagsins haldið í tuttugasta sinn miðvikudaginn
8. júní 2011 og hefst kl. 19:00 við hús
Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8 í Reykjavík.
Vegalengdir
3 km og 10 km með tímatöku. Hægt er að velja um 3 kílómetra skokk eða göngu frá Skógarhlíð að Öskjuhlíð og til baka eða 10 kílómetra hlaup suður fyrir Reykjavíkurflugvöll og til baka.
Flokkaskipting
Tími verður mældur hjá öllum og úrslit birt eftir aldursflokkum, sjá eftirfarandi lista:
- 14 ára og yngri
- 15-18 ára
- 19-39 ára
- 40-49 ára
- 50-59 ára
- 60 ára og eldri
Skráning
Forskráning er á www.hlaup.is. Skráning er hjá Krabbameinsfélaginu í Skógarhlíð 8 miðvikudaginn 8. júní kl. 8.30-18. Þátttökugjald er 1.000 krónur. Þeir sem fæddir eru 1951, sama ár og Krabbameinsfélagið var stofnað, fá ókeypis í tilefni afmælisins.
Verðlaun
Allir sem ljúka hlaupinu fá viðurkenningarpening. Vegleg útdráttarverðlaun eru í boði.
Upplýsingar
Upplýsingar á skrifstofu Krabbameinsfélagsins í síma 540 1900.