30.05 2011

Happdrættið styður við margþætta starfsemi

Nú hafa verið sendir út miðar í sumarhappdrætti Krabbameinsfélagsins. Allt frá árinu 1955 hefur Krabbameinsfélagið staðið fyrir happdrætti sem hefur verið ein veigamesta tekjulind félagsins og stuðlað mjög að uppbyggingu þess og þróun. Fræðsla um krabbamein og krabbameins­varnir, útgáfa fræðslurita, tóbaksvarnir, stuðningur við krabbameinssjúklinga, leit að krabbameini og rannsóknir eru allt þættir í starfsemi félagsins sem byggjast á fjárhagsstuðningi við félagið.

Í sumarhappdrættinu fá karlmenn heimsenda miða. Vinningar eru að þessu sinni 224 talsins að  verðmæti um 30,8 milljónir króna. Aðalvinningurinn er Chevrolet Captiva LT að verðmæti um 5,6 milljónir króna. Annar aðalvinningurinn er bifreið eða greiðsla upp í íbúð að verðmæti ein milljón króna. Tuttugu vinningar eru í formi úttekta hjá ferðaskrifstofu eða verslun, hver að verðmæti 200 þúsund krónur. Einnig eru 202 vinningur í formi úttekta hjá ferðaskrifstofu eða verslun, hver að verðmæti 100 þúsund krónur. Vinningarnir eru skattfrjálsir. Dregið verður 17. júní.

Krabbameinsfélagið hvetur stuðningsmenn sína til að bregðast vel við og kaupa heimsenda miða. Happdrættismiðarnir eru sendir sem greiðsluseðlar til að auðvelda þeim sem vilja taka þátt í happdrættinu að greiða miðana í heimabanka/netbanka og eiga jafnframt möguleika á glæsilegum vinningum. Miðar eru einnig til sölu á skrifstofu Krabbameinsfélagins að Skógarhlíð 8. Upplýsingar eru gefnar í síma 540 1900. Einnig má hafa samband ef óskað er eftir að borga með greiðslukorti. Krabbameinsfélagið hefur haft það fyrir venju í marga áratugi að hringja í vinningshafa og tilkynna þeim um vinninga.

Ár hvert greinast að meðaltali nær 1.400 manns með krabbamein hér á landi. Hjá körlum er krabbamein í blöðruhálskirtli algengast og brjóstakrabbamein hjá konum. Í öðru sæti er lungna­krabbamein hjá báðum kynjum og ristilkrabbamein í því þriðja. Nú eru um 11.000 einstaklingar á lífi sem fengið hafa krabbamein. Þriðji hver Íslendingur fær krabbamein einhvern tíma á lífsleiðinni. Um fjórðung dauðsfalla á Íslandi má rekja til krabbameins.

 



Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Sigríður Snæbjörnsdóttir






Skipta um leturstærð


Leit