20.05 2011

Fræðslumyndin „Þetta er svo lúmskt“

Ristilkrabbamein fræðslumynd Krabbameinsfélag ÍslandsFræðslumyndin „Þetta er svo lúmskt“, sem er um krabbmein í ristli og endaþarmi, verður sýnd á RÚV þriðjudaginn 24. maí nk. kl. 21:25 (endursýnd sunnudaginn 29. maí kl. 13:00). 

Í myndinni er fjallað um ýmsa þætti er varða krabbamein í ristli og endaþarmi. Þar eru viðtöl við einstaklinga sem hafa greinst með þennan sjúkdóm og við fagfólk sem vinnur að greiningu og meðferð hans. Einnig er lögð áhersla á að kynna hvað hver einstaklingur getur gert til að draga úr hættunni á að fá sjúkdóminn og hvað hægt er að gera til að greina hann á forstigi, þegar mestur möguleiki er á lækningu. Páll Kristinn Pálsson gerði myndina en hann hefur gert um tug fræðslumynda um ýmsa langvinna sjúkdóma. Friðbjörn Sigurðsson krabbameinslæknir og Ásgeir Theódórs meltingarsérfærðingur voru faglegir ráðgjafar ásamt fleiru heilbrigðisstarfsfólki. Krabbameinsfélag Reykjavíkur, Ristilfélagið og Stómasamtök Íslands standa að gerð myndarinnar.

Þriðja algengast krabbameinið

Ristil- og endaþarmskrabbamein er þriðja algengasta krabbameinið á Íslandi og ein algengasta dánarorsökin af völdum krabbameins. Að meðaltali greinast um 140 einstaklingar á ári og tíðnin hefur vaxið að undanförnu, t.d. þrefaldast hjá körlum á síðustu 50 árum. Árlega deyja um 50 manns af völdum þessa sjúkdóms. Krabba-meinsfélagið vill vekja fólk til vitundar um gildi forvarna og skimunar fyrir ristil- og endaþarmskrabbameini með áherslu á að oft er hægt að koma í veg fyrir það með skimun.  



Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Sigríður Snæbjörnsdóttir






Skipta um leturstærð


Leit