20.04 2011

Velheppnuð örráðstefna

Að greinast aftur og aftur og aftur... Að lifa með krabbameini var yfirskrift örráðstefnu sem Krabbameinsfélag Íslands hélt þann 18.4. 2011. Ráðstefnan var haldin í húsnæði Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélags Íslands og var húsfylli það er um 100 manns.

Tilgangur örráðstefnunnar var í fyrsta lagi að segja frá góðu fréttunum, það er að nú er krabbamein sjúkdómur en ekki dauðadómur eins og talað var um fyrir ekki svo mörgum áratugum síðan. Laufey Tryggvadóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsskrárinnar, sagði meðal annars í erindi sínu að hlutfall sjúklinga sem lifir í fimm ár eða lengur eftir greiningu krabbameins hefur gjörbreyst frá því um 1954 það er hækkað úr um 30% í um 60%. Í öðru lagi var tilgangurinn að gefa von og veita bjartsýni en Gunnhildur Óskarsdóttir sagði frá því hvernig hún hefði haldið áfram að reikna með lífinu þegar hún greindist aftur með krabbamein.  Í þriðja lagi var tilgangurinn að kenna fólki að setja gleði í jafn viðkvæmt efni og það er að greinast með krabbamein. Það gerðu Katla María Þorgeirsdóttir og Valgeir Skagfjörð þegar þau fóru með þátt úr einleiknum Ótuktinni sem byggir á bók Önnu Pálínu Árnadóttur og verður frumsýndur í Iðnó þann 28. apríl. Síðast en ekki síst var tilgangurinn að opna umræðuna um óttann við það að greinast aftur og þau áhrif sem það hefur á líf einstaklingsins og þeirra sem standa honum næst. Með hreinskilni sinni, hvatningu og gleði sagði Mary Schnack, sem hefur greinst sjö sinnum með krabbamein, frá því hvernig á að lifa með krabbameini en ekki bara að þrauka.

Mikil ánægja var með ráðstefnuna og  töluðu þátttakendur um að þeir væru fullir vonar, bjartsýni og gleði eftir að hafa hlustað á fyrirlesarana.


Hægt er að horfa á fyrirlestrana hér.


Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Sigríður Snæbjörnsdóttir






Skipta um leturstærð


Leit