Alþingi samþykkti í morgun lög sem tryggja að bætur úr sjúkdómatryggingum verði undanþegnar tekjuskatti. Krabbameinsfélagið hefur barist fyrir því undanfarna mánuði að tekin verði af öll tvímæli um skattfrelsi þessara bóta og fagnar af heilum hug þessari ákvörðun, enda er þetta mikið hagsmunamál sjúklinga.
Eftir úrskurði skattayfirvalda og dóm héraðsdóms í fyrra leit út fyrir að vafi léki á um skattfrelsi slíkra bóta, þrátt fyrir að þær hefðu ekki verið skattlagðar allt frá 1995. Krabbameinsfélagið og fleiri aðilar tóku því málið upp við stjórnvöld og hafa beitt sér fyrir þeirri lagabreytingu sem nú hefur verið samþykkt.