
„Mottumars“ er yfirskrift mánaðarlangs átaks Krabbameinsfélags Íslands um karlmenn og krabbamein sem í ár var haldið í fjórða sinn. Átakið er tvíþætt, árvekniátak og fjáröflunarátak.
Fjáröflunin fólst í því að karlmenn voru hvattir til að safna yfirvararskeggi í marsmánuði og að skrá sig til þátttöku í mottukeppninni á vefsíðunni www.karlmennogkrabbamein.is. Þar söfnuðu þeir svo áheitum til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands. Krabbameinsfélagið og aðildarfélög þess um land allt seldu einnig skeggpinna til styrktar félaginu og nokkur fyrirtæki styrktu félagið með því að gefa ágóða af sölu vöru til félagsins.
En mottumars snýst ekki síður um árveknina og var hún í hávegum höfð í marsmánuði. Meira en 700 karlar greinast ár hvert með krabbamein hér á landi. Nú geta 61% karla sem greinast vænst þess að lifa í fimm ár eða lengur en hlutfallið hjá konum er 66%. Krabbameinsfélagið leggur því áherslu á að karlar geri sér grein fyrir helstu einkennum krabbameina og leiti læknis verði þeir varir við þau.
Að minnsta kosti helmingur landsmanna tóku þátt í Mottumars og var vefsíðan heimsótt af um 160.000 einstaklingum, oftar en 500.000 sinnum og voru flettingar yfir þrjár milljónir. Greinilegt er að Íslendingar um allan heim fylgjast með mottumars og var síðan heimsótt af 115 löndum, flestir komu frá Norðurlöndunum, Bretlandi og Bandaríkjunum en fjölmargir Íslendingar eru búsettir í þeim löndum. „Við viljum þakka landsmönnum öllum nær og fjær fyrir þátttökuna í Mottumars. Við teljum það einkar mikilvægt að halda uppi fræðslunni og árvekninni um baráttuna við krabbamein hjá karlmönnum og ljóst er að átakið okkar skilar þar góðum árangri“, segir Ragnheiður Haraldsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélags Íslands. Á vefsíðu félagsins www.krabb.is er ýmis konar fræðsluefni fyrir karlmenn jafnt sem konur um einkenni krabbameina og þar má líka finna upplýsingar um þá þjónustu sem er í boði hjá Krabbameinsfélaginu fyrir þá sem greinast með krabbamein og aðstandendur þeirra.
Í mars bauðst fyrirtækjum að fá heimsókn frá Krabbameinsfélagi Íslands og fór hjúkrunarfræðingur frá Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins í yfir 50 fyrirtæki og hélt fyrirlestra um karlmenn og krabbamein þeim að kostnaðarlausu. Krabbameinsfélagið hélt örráðstefnuna „Vertu ekki með þessa stæla“ en heiti hennar vísaði m.a. til þeirrar karllægu hegðunar að vera töffari - standa allt af sér, hvað sem á dynur og láta engan bilbug á sér finna. Fyrirlestrar voru um mataræði, tilfinningar, streitu og krabbamein sem og reynslusaga ungs manns sem greindist með heilaæxli fyrir nokkrum árum. Fullt var út að dyrum á ráðstefnunni og því hefur Krabbameinsfélagið ákveðið að halda áfram með örráðstefnur af þessu tagi.
Skilaboð til karla voru gefin út af fræðsluráði Krabbameinsfélagsins og er nú verið að undirbúa ýmist annað efni sem snýr að karlmönnum og krabbameini. Það sem safnast var verður áfram notað til að efla forvarnir og fræðslu, rannsóknir og ráðgjöf hjá Krabbameinsfélagi Íslands.