13.04 2011

Myndlistarkonan Sigurdís styrkir Krabbameinsfélag Íslands

Myndlistarkonan Sigurdís Harpa styrkti Krabbameinsfélagið um 80.000 krónur nýverið og gaf félaginu einnig þrjár myndir til að setja upp í íbúðum Krabbameinsfélagsins. Íbúðirnir eru fyrir fólk í krabbameinsmeðferð og eru af landsbyggðinni og hefur það afnot af íbúðunum í Reykjavík á meðan meðferð þeirra stendur.

Í mars setti Sigurdís Harpa upp sýningu í Gallerí Fold með myndum af 31 skeggjuðum karlmanni. Sýningin var sölusýning og rann þriðjungur af andvirði verkanna, þ.e. 80.000 krónur til styrktar Krabbameinsfélags Íslands í tilefni af Mottumarsátakinu. 

Myndirnar sem voru seldar og myndirnar þrjár sem voru gefnar Krabbameinsfélaginu voru unnar með blandaðri tækni og áttu það sameiginlegt að þær voru allar gerðar í mars árið 2011 og sýndu skeggjaða einstaklinga úr mannlífi og sögusviði Íslands í bland við þekkta erlenda karlmenn. Verkin voru til sýnis og sölu í Gallerí Fold á Rauðarárstíg.

Til að skoða verkin er hægt að heimsækja vefsíðu Sigurdísar www.sigurdis.is.

Á myndinni afhendir Sigurdís Harpa myndlistarkona Ragnheiði Haraldsdóttur forstjóra Krabbameinsfélagsins myndirnar og styrkinn.


Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Sigríður Snæbjörnsdóttir






Skipta um leturstærð


Leit