
Íslenskir sérfræðingar hafa gefið út bækling um lungnakrabbamein sem ætlaður er sjúklingum og aðstandendum þeirra. Textinn er frumsaminn af hátt í 20 íslenskum sérfræðingum og prýða bæklinginn fjöldi mynda og teikninga.
Því miður dregur lungnakrabbi flesta krabbameinssjúklinga til dauða, ¼ af öllum andlátum vegna krabbameina er vegna lungnakrabbameins, 90% hafa reykingarsögu. Í dag reykja tæplega 18% fullorðinna Íslendinga, sem er lægra hlutfall en í flestum nágrannalöndum okkar. Þó er áhyggjuefni að árangur reykingavarna hefur ekki verið jafn góður meðal unglinga og hjá fullorðnum.
Hér ber að líta bæklinginn.