
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er á meðal efstu liða í átakinu mottumars. Blaðamaður hjá Morgunblaðinu ræddi við nokkra lagannaverði sem skarta fögrum mottum.
„Menn sýna bæði samstöðu með félögum sínum sem hafa og eru að berjast við þennan sjúkdóm og svo með þessum góða málstað. Þetta hefur dekkri hliðar, þótt menn brosi út í annað líka,“ sagði Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins m.a. í viðtali við Moggann. Einnig var rætt við fjóra aðra lögreglumenn sem skarta flottum mottum.