
Varaliturinn verður til sölu í Smáralindinni föstudaginn 25. mars frá klukkan 16 til 19 og laugardaginn 26. mars frá 11 – 16. Allur ágóði mun renna til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands í tilefni af átakinu Mottumars.
Varaliturinn er frá bandaríska fyrirtækinu L´Paige og er hvítur á lit. Varaliturinn er sagður endast lengur á vörum en aðrir varalitir. Aðlagast hitastigi líkams og veita ljósrósarrauðan í bleikan lit.
Þau sem standa á bak við söluna eru 12 nemendur í Menntaskólanum við Sund og eru þau að taka þátt í verkefni sem heitir Fyrirtækjasmiðjan og er á vegum Ungra Frumkvöðla.Fyrirtækið þeirra heitir Bel.ja en það nafn vísar í skólafélag MS.
Varaliturinn kostar 3.000 krónur og eru þau að selja fyrir framan Hagkaup í Smáralindinni. Allur ágóði af sölunni rennur til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands.