
Sigurdís Harpa hefur sett upp sýningu í Gallerí Fold með myndum af 31 skeggjuðum karlmanni. Sýningin er sölusýning og mun þriðjungur af andvirði verkanna renna til styrktar Krabbameinsfélags Íslands í tilefni af Mottumarsátakinu.
Um er að ræða myndir unnar með blandaðri tækni sem eiga það sameiginlegt að þær eru allar gerðar í mars árið 2011 og sýna skeggjaða einstaklinga úr mannlífi og sögusviði Íslands í bland við þekkta erlenda karlmenn. „Mig langaði að styrkja þetta þarfa átak svo ég ákvað að taka þátt á minn máta og mála skeggjaða karlmenn og styrkja Krabbameinsfélagið um þriðjung af andvirði verkanna en verði þeirra er stillt í hóf og kostar hver þeirra á 30.000. Ég vil einnig koma þakklæti á framfæri við stuðning Galleri Foldar við söfnunina“.
Verkin verða til sýnis og sölu í Gallerí Fold á Rauðarárstíg en sýningin hefst mánudaginn 28. mars og mun hún standa yfir til 4. apríl.
Verkin verða jafnframt birt á heimasíðu sigurdísar www.sigurdis.is.