25.03 2011

Sófi til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands

Sófi til styrktar Krabbameinsfélagi ÍslandsÍ tilefni af Mottumars og HönnunarMars ákváðu aðstandendur húsgagnaverslunarinnar Módern að framleiða sérútfærslu af vinsæla M-Sófanum sínum en sófinn er íslensk hönnun og framleiðsla sniðin eftir máli framleiddur af fyrirtækinu Zenus. Söluandvirði sófans mun renna óskert til styrktar Krabbameinsfélags Íslands og verður sófinn til sýnis í verslun Módern að Hlíðarsmára 1 í Kópavogi.

Sófinn er í 232 cm að lengd í fallegum bláum lit, klæddur flauelsefni og með hnöppum í baki. Fætur sófans eru sérsmíðaðar úr kopar með viðarhnöppum. Hægt verður að afhenda sófann einnig með öðrum fótum ef þess er óskað. „Við ákváðum að láta gott af okkur leiða og selja sófann og láta upphæðina renna óskerta til Krabbameinsfélagsins en sófinn kostar 350.000 krónur,“ segir Úlfar Finsen, framkvæmdastjóri Módern.



Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Sigríður Snæbjörnsdóttir






Skipta um leturstærð


Leit