
Nemendur í Hársnyrtideild Iðnskólans í Hafnarfirði söfnuðu fé til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands. Nemendurnir fóru fimmtudaginn 3. mars í sína árlegu heimsókn í Fjölbrautaskólann á Selfossi. Þar voru Kátir dagar í fullum gangi og hafa nemendur á 3. önn í hársnyrtideildinni ásamt kennara sínum kynnt deildina fyrir nemendum á Selfossi með því að mæta á Káta daga og bjóða kennurum og nemendum klippingu á kostnaðarverði. Að vanda var góð aðsókn í að láta nemendur snyrta á sér kollinn og eftir daginn höfðu safnast í sjóðinn kr 82.500,-.
Í tilefni af söfnunarátakinu Mottumars ákváðu nemendur að gefa allan sjóðinn sem safnaðist þennan dag til Krabbameinsfélagsins og kom Laila Sæunn Pétursdóttir, fulltrúi Krabbameinsfélagsins í heimsókn í Iðnskólann og tók á móti framlaginu úr hendi nemenda.
Aðstandendur Krabbameinsfélags Íslands þakka nemendum einstaklega vel fyrir.