Óhætt er að fullyrða að lífshorfur íslenskra kvenna sem greinast með brjóstakrabbamein séu með þeim bestu sem þekkist í heiminum og flestar konur læknast af sínum sjúkdómi. Skurðaðgerð er oftast fyrsta stig meðferðarinnar eftir að sjúkdómsgreiningin er ljós. Þá er krabbameinið úr brjóstinu fjarlægt og í sömu aðgerð einnig eitlar úr holhönd sömu megin. Í flestum tilfellum reynist nægjanlegt að taka krabbameinið ásamt aðliggjandi eðlilegum brjóstavef (fleygskurður) en stundum er nauðsynlegt að fjarlægja allt brjóstið. Geislameðferð er oftast beitt í kjölfar fleygskurðar og eru lífshorfur þeirra sem fara í fleygskurð og geislameðferð sambærilegar því þegar brottnám brjóstsins er framkvæmt.
Undanfarin ár hafa í Evrópu orðið miklar framfarir í skurðmeðferð brjóstakrabbameina og í nokkrum löndum eru brjóstaskurðlækningar orðnar sérstök undirsérgrein skurðlækninga. Áfram er auðvitað mikilvægast að leitast sé við að sjúkdómurinn sé læknaður, en jafnframt hafa þróast nýjar aðferðir í brjóstaskurðlækningum ("oncoplastik") þar sem notast er við tækni lýtaskurðlækninga. Þá er meinið skorið burt með því sjónarmiði að valda sem minnsta lýti án þess að það komi að nokkru leyti niður á árangri meðferðarinnar. Í stórum brjóstum er t.d. unnt að fjarlægja krabbameinið og minnka brjóstið í leiðinni með því að notast við hefðbundnar brjóstaminnkunaraðferðir lýtaskurðlækninga. Heilbrigða brjóstið er minnkað á sama hátt og sjúka brjóstið síðan geislað eftir aðgerðina. Í minni brjóstum hafa verið þróaðar aðferðir til að koma í veg fyrir afmyndun brjóstsins í kjölfar fleygskurðar (brjóstamótun). Þegar fjarlægja þarf allt brjóstið er stundum hægt að byggja það upp í sömu aðgerð ef konan óskar eftir því. Ef líkur eru taldar á að framhaldsmeðferð muni reynast nauðsynleg eftir brottnám brjóstsins, er oftast mælt með því að klára hana áður en brjóstið er byggt upp að nýju. Brjóst eru byggð upp með annaðhvort eigin vef konunnar eða þá að gervibrjósti er komið fyrir undir húð og vöðvum. Uppbygging brjósta eftir brottnám og brjóstamótun geta s.s. verið talsvert umfangsmeiri en hefðbundnar brjóstakrabbameinsskurðaðgerðir og felast stundum í aðgerðum á báðum brjóstunum til að koma í veg fyrir ósamræmi á útliti og stærð. Þó að aldur og almennt heilsufar skipti máli er alltaf leitast við að koma til móts við óskir kvenna. Þessi þróun í brjóstaskurðlækningum getur haft mjög jákvæð áhrif á lífsgæði kvenna þó að þau séu vissulega einstaklingsbundin. Á meðan einni konu finnst óhugsandi annað en að brjóst hennar sé byggt upp að nýju eftir brottnámið finnst þeirri næstu alveg hægt að venjast því að ganga með gervibrjóst í brjóstahaldaranum og getur ekki hugsað sér að fara í aðra aðgerð!
Brjóstaskurðlæknir sem hefur sérhæft sig á þessu sviði þarf að taka tillit til og koma til móts við mismunandi kröfur þessara kvenna og að búa yfir tæknilegri færni til að bjóða upp á brjóstauppbyggingu og brjóstamótun. Jafnframt krefjast þessar aðgerðir meiri undirbúnings af hálfu skurðlæknisins og konunnar. Þegar að aðgerðinni kemur verða konunni að vera fyllilega ljósir kostir og gallar (og hugsanlegar hættur) aðgerðarinnar og hún verður að hafa haft tíma til þess að fá öllum sínum spurningum svarað. Þetta getur verið tímafrekt ferli og kallar á aukna sérhæfingu þess starfsfólks sem vinnur við meðferð brjóstakrabbameina.
Í flestum tilfellum er þörf á því að fjarlægja holhandareitla samfara brjóstaaðgerðinni. Það er þáttur í meðferð krabbameinsins en gerir einnig kleift að rannsaka hvort krabbamein hefur borist í eitlana. Slík vitneskja hjálpar til við að meta útbreiðslu sjúkdómsins og gefur mikilvægar upplýsingar um frekari framhaldsmeðferð (lyf- eða geislameðferð). Undanfarin ár hefur nýjum og skilvirkari aðferðum verið beitt við brottnám holhandareitla. Þær felast í því að fjarlægja s.k. "varðeitil", en það er sá eitill sem líklegastur er til að hafa í sér krabbamein (meinvarp) ef það hefur dreifst út fyrir brjóstið. Varðeitillinn er síðan skoðaður með smásjárrannsókn meðan á aðgerðinni stendur og ef krabbamein er til staðar í honum eru fleiri eitlar fjarlægðir úr holhöndinni. Á hinn bóginn er þeim konum, sem ekki eru með krabbamein í þessum eitli hlíft við frekari eitlatöku, en langvarandi handarbjúgur getur fylgt holhandareitlatöku.
Ljóst er að margs er að gæta áður en brjóstaskurðaðgerð er framkvæmd. Uppbygging brjósta við brottnám, brjóstamótun samfara fleygskurði og varðeitlabrottnám eru mikilvægar nýjar skurðaðgerðir sem nú eru viðhafðar í skurðaðgerðum á brjóstakrabbameini. Þessar nýju skurðaðferðir bæta ekki lífshorfur en hafa haft mikil áhrif á lífsgæði kvenna með brjóstakrabbamein.
Úr Fréttablaðinu, 23. október 2007.
Grein eftir Kristján Skúla Ásgeirsson skurðlækni og Þórdísi Kjartansdóttur skurðlækni.