Sigmundur Guðbjarnason fyrrum háskólarektor flutti fyrirlestur sem hann nefndi: "Hvernig geta lífvirk náttúrurefni í grænmeti og öðrum heilsujurtum styrkt forvarnir gegn hjarta- og æðasjúkdómum, heilabilun og krabbameini?"
Eiríkur Jónsson yfirlæknir á þvagfæraskurðdeild Landspítala – háskólasjúkrahúss svaraði mörgum fyrirspurnum fundarmanna.
Á fundinum var sérstaklega fjallað um þann kost að bíða með að fara í aðgerð ("Bið undir eftirliti", Watchful Waiting). Einstaklingur sagði frá sinni reynslu.
Rabbfundir Góðra hálsa eru fyrsta miðvikudag í hverjum mánuði, kl. 17.