Krabbameinsfélagið hefur um áratugaskeið unnið að rannsóknum á og fræðslu varðandi krabbamein auk þess sem krabbameinsleit er mikilvægur þáttur í starfsemi þess. Samkvæmt 2. grein laga félagsins er tilgangur þess að styðja og efla í hvívetna baráttuna gegn krabbameini og mun innleiðing hugbúnaðarins auka skilvirkni, samþættingu og öryggi í rekstri félagsins en verndun persónuupplýsinga er mjög mikilvæg á þessu sviði.
Þau hugbúnaðarleyfi sem um er að ræða eru leyfi fyrir uppfærslu yfir í Windows XP stýrikerfið, Microsoft Office Professional framleiðniforritapakka, Windows netþjónaleyfi, Exchange netþjónaleyfi, SMS netþjónaleyfi og SharePoint netþjónaleyfi. Ennfremur innleiðir Krabbameinsfélagið Microsoft Dynamics CRM viðskiptatengslahugbúnaðinn.
Ennfremur koma Opin Kerfi að stuðningnum en félagið hefur milligöngu um afhendingu hugbúnaðarins.
Að sögn Gústafs Gústafssonar markaðsstjóra Krabbameinsfélags Íslands, er Krabbameinsfélagið mannúðar- og líknarfélag, rekið að mestu leyti á framlögum frá einstaklingum og fyrirtækjum, þannig að við allar ákvarðanir þarf að taka tillit til kostnaðar sérstaklega. „Hingað til höfum við valið að nota margar mismunandi tegundir af hugbúnaði af kostnaðarástæðum og þar með fórnað ýmsum eiginleikum og hagræði. Nú getum við gefið okkar starfsfólki kost á að vinna með nýjasta og öflugasta hugbúnað sem völ er á og samt sparað okkur stórar fjárhæðir, og mun það gera okkur kleift að ná betri árangri í öllu okkar starfi,“ segir Gústaf.
Guðrún Agnarsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélagsins segist vera mjög þakklát fyrir þennan stuðning. „Fjölþætt starf Krabbameinsfélagsins í þágu almennings byggir í æ ríkara mæli á nútímalegri og árangursríkri tölvuvinnslu og öflugum hugbúnaði. Skilningur og velvilji Microsoft á Íslandi og Opinna kerfa í samstarfi við félagið skiptir miklu máli og gerir okkur kleift að skila enn betri og árangursríkari þjónustu og fræðslu til þjóðarinnar.“
Halldór Jörgensson, framkvæmdastjóri Microsoft Íslandi segir það vera heiður að Krabbameinfélagið hafi leitað til Microsoft Íslandi. „Það er von okkar að þetta framlag komi starfsemi Krabbameinsfélagsins til góða og því mikilvæga verkefni sem félagið leiðir okkur öllum til stuðnings,“ segir Halldór jafnframt.
Microsoft Íslandi leggur mikið upp úr því að vera ábyrgur þegn í íslensku þjóðfélagi og rétta fram hjálparhönd þegar mikið liggur við, enda er Microsoft þekkt um allan heim fyrir framlög sín til þróunaraðstoðar og samfélagslegra verkefna og er styrkur þessi liður í því. Fyrr á þessu ári hefur Microsoft Íslandi meðal annars styrkt Barnaspítala Hringsins og Rauða Kross Íslands.
Microsoft var stofnað árið 1975 og er í fararbroddi á heimsvísu við þróun hugbúnaðar, þjónustu og lausna sem hjálpa fólki og fyrirtækjum við að ná markmiðum sínum.
Halldór Jörgensson, framkvæmdastjóri Microsoft Íslandi, vísar Guðrúnu Agnarsdóttur, forstjóra Krabbameinsfélags Íslands, veginn um nýjan hugbúnað félagsins.
