09.02 2001

Ágóði af "Söng steindepilsins" gefinn sjúklingum

Nokkur ágóði var af sölunni og í samráði við höfunda og viðmælendur vildi Hólmfríður að hann rynni til krabbameinssjúklinga sem ættu í fjárhagsörðugleikum. Í samráði við Krabbameinsfélag Reykjavíkur var ákveðið að fá formenn Styrks, samtaka krabbameinssjúklinga og aðstandenda þeirra og Samhjálpar kvenna, stuðningshóps kvenna sem greinast með bjóstakrabbamein, til þess að úthluta ágóðanum sem er 100.000 kr. Nokkrar fjölskyldur skiptu upphæðinni á milli sín og kom hún sér vel fyrir þær. Einnig gaf Hólmfríður Krabbameinsfélagi Reykjavíkur eintök af bókinni sem eru til sölu hjá Krabbameinsfélaginu í Skógarhlíð 8.



Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Jakob Jóhannsson






Skipta um leturstærð


Leit