Meðal karla er blöðruhálskirtilskrabbamein algengast, lungnakrabbamein í öðru sæti og magakrabbamein í þriðja sæti. Meðal kvenna er brjóstakrabbamein algengast, lungnakrabbamein í öðru sæti og krabbamein í eggjastokkum í þriðja sæti.
Árið 1987 fóru nýgreind brjóstakrabbamein í fyrsta sinn yfir eitt hundrað, urðu 116. Þá hafa lungnakrabbamein hjá körlum aldrei orðið fleiri á einu ári eða 54.
Síðan skráning krabbameina hófst hér á landi árið 1955 hefur nýgengi krabbameina aukist um 1% á ári að meðaltali. Á þessu tímabili hefur dregið úr sumum tegundum eins og magakrabbameini og leghálskrabbameini. Hins vegar hefur tíðni margra krabbameina aukist, til dæmis er lungnakrabbamein nú þrefalt algengara en fyrir þremur áratugum.