Krabbameinsfélag Íslands gerðist aðili að Alþjóða krabbameinssambandinu (UICC) árið 1952 og á einnig aðild að Evrópusambandi krabbameinsfélaga (ECL) og Norræna krabbameinssambandinu (NCU).

Þing Norræna krabbameinssambandsins eru haldin hér á landi á fimm ára fresti, það síðasta var haustið 2003. Auk Krabbameinsfélags Íslands eru aðildarfélög frá Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð.

Samvinnan beinist að rannsóknum, fræðslu og stuðningi við sjúklinga. Ár hvert er úthlutað styrkjum úr Norræna krabbameinsrannsóknasjóðnum og hafa margir íslenskir vísindamenn notið góðs af því.

Þá tekur Krabbameinsskrá Krabbameinsfélags Íslands þátt í norrænu samstarfi á vegum Norðurlandasambands krabbameinsskráa (ANCR).

Markaðssvið krabbameinsfélagsins tekur árlega þátt í markaðsráðstefnu NCU og alþjóðlegri fjáröflunarráðstefnu IFC(sjá heimasíðu) sem haldin er í Hollandi.

Norrænu krabbameinsfélögin:
 Danska krabbameinsfélagið (Kræftens Bekæmpelse). 
 Finnska krabbameinsfélagið (Syöpäjärjestöt). 
 Færeyska krabbameinsfélagið (Föroya Felag Móti Krabbameini). 
 Norska krabbameinsfélagið (Kreftforeningen). 
 Sænska krabbameinsfélagið (Cancerfonden). 

 Norræna krabbameinssambandið (NCU).

 Evrópusamtök krabbameinsfélaga.

 Sérstakar vefsíður á ensku.

 World Cancer Declaration 2008.


Forvarnir

  1. Þekkjum einkennni krabbameins
  2. Lifum heilbrigðu lífi




   

Senda


Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit