Formenn

Í sextíu ára sögu Krabbameinsfélags Íslands hafa formenn félagsins verið átta, sjö karlar og ein kona. Niels Dungal prófessor var kosinn fyrsti formaður félagsins á stofnfundinum 27. júní 1951 (en hann var einnig fyrsti formaður Krabbameinsfélags Reykjavíkur árið 1949). Niels gegndi formennskunni þar til hann lést, árið 1965. Bjarni Bjarnason læknir var formaður félagsins frá 1966 til 1973. Ólafur Bjarnason prófessor tók við af Bjarna og var formaður til 1979. Næstu níu árin var Gunnlaugur Snædal prófessor formaður félagsins. Almar Grímsson apótekari var formaður frá 1988 til 1992, Jón Þorgeir Hallgrímsson yfirlæknir frá 1992 til 1998 og Sigurður Björnsson yfirlæknir frá 1998 til 2008. Sigríður Snæbjörnsdóttir hjúkrunarfræðingur hefur verið formaður félagsins síðan 2008..


24.09 2009 - Fimmtudagur

Sigríður Snæbjörnsdóttir 2008-

Sigríður Snæbjörnsdóttir hjúkrunarfræðingur er núverandi formaður félagsins og var kjörin á aðalfundi félagsins árið 2008
24.09 2009 - Fimmtudagur

Sigurður Björnsson 1998-2008

Sigurður Björnsson læknir var formaður félagsins frá árinu 1998 til ársins 2008.


Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Sigríður Snæbjörnsdóttir






Skipta um leturstærð


Leit