Góðir hálsar, stuðningshópur um krabbamein í blöðruhálskirtli, verða með rabbfund í húsi Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8 í Reykjavík, miðvikudaginn 4. júlí kl. 17.00.
Fundurinn er einkum ætlaður þeim sem greinst hafa með krabbamein í blöðruhálskirtli og aðstandendum þeirra.
Kaffi verður á könnunni.