27.08 2012 - Mánudagur

Námskeið í árvekni/gjörhygli

Námskeið í árvekni/gjörhygli
 Á undanförnum áratugum hefur svokölluð  árvekniþjálfun, stundum kölluð „gjörhygli“ (mindfulness-based stress reduction)  verið innleidd sem viðbót við hefðbundna læknisfræðilega og sálfræðilega meðferð. Þar er tvinnað saman aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar og sálfræði austrænnar visku.  Margar rannsóknir hafa sýnt fram á að árvekniþjálfun hefur jákvæð áhrif á almenna vellíðan og bætir heilsufar og dregur úr streitu, kvíða og depurð. Áherslan er  á að læra að nema staðar „hér og nú“  með stuttum hugleiðsluæfingum og annarri hugarþjálfun . Þannig má öðlast meiri hugarró  og njóta betur líðandi stundar.
Námskeiðið er á vegum Sálfræðiþjónustu geðsviðs  LSH í samvinnu við Krabbameinsfélagið og er fyrir sjúklinga spítalans  og/eða aðstandendur.
Leiðbeinandi: Margrét Bárðardóttir sálfræðingur
Skráning: asdisk@krabb.is
Staður: Ráðgjafaþjónusta Krabbameinsfélagsins,  Skógarhlíð 8, 1. hæð. s. 540 1915
Námskeiðið hefst mánudaginn 27.8. kl. 14.30-16.00 
Alls 7 skipti. Kostnaður: Kr.7700.-minna f.öryrkja

Forvarnir

  1. Þekkjum einkennni krabbameins
  2. Lifum heilbrigðu lífi

Ráðgjöf og stuðningur

Ráðgjafarþjónustan
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík

Forstöðumaður: 
Sigrún Lillie Magnúsdóttir

Sími: 540 1900
Gjaldfrjáls sími: 800 4040
8004040@krabb.is







Skipta um leturstærð


Leit