01.02 2012 - Miðvikudagur

Dagskrá marsmánaðar

Dagskrá Ráðgjafarþjónustunnar

Opið að Skógarhlíð 8 í Reykjavík, 1. hæð, alla virka daga kl. 9-16. Sími 800 4040. Netföng  una@krabb.is og asdisk@krabb.is  Hægt er að hafa samband við félagsráðgjafa í síma 540 1912 og hjúkrunarfræðing í síma 540 1916. Eða koma á staðinn. Öll þjónustan er að mestu án endurgjalds. Sjá nánar á www.krabb.is
Góð aðstaða fyrir fundi og námskeið og til að hittast yfir kaffibolla. Stuðningshóparnir halda flesta sína fundi í húsnæðinu og eru með viðveru og viðtalstíma þar.

Mars  2012  –  stundaskrá

Mánudagar           kl.11.30-12.00   Qi gong. Leiðbeinandi Gunnar Eyjólfsson, ástundun tvisvar í viku. Hefst 9. janúar
                            kl. 20.00-21.00 Göngum saman.  Gengið frá Fríkirkjunni við tjörnina í Reykjavík.
                            kl. 14.30-16.00 Árverkninámskeið Leiðbeinandi Margrét Bárðardóttir sálfræðingur 
Þriðjudagar          kl. 15.00-16.30 Samhjálp kvenna. Viðtalstími, sími 540 1911
                            kl. 14.00-16.00 ÖR-NÁMSKEIÐ í hugrænni atferlismeðferð hefst 6. mars 2012  
Miðvikudagar       kl. 11.30-12.00 Qi gong iðkun. Leiðbeinandi Gunnar Eyjólfsson. Boðið upp á hressingu á eftir.
Fimmtudagar        kl. 13.00-15.00 Styrkur. Viðtalstími, sími 896 5808
Föstudagar           kl. 10.30-12.30 Handavinnuhornið prjón, hekl og samvera. Hefst. 9. mars
                            kl. 13.00-13.00 Fræðsla í boði Landspítalans: Félagsráðgjafi 2/3, Sjúkraþjálfari 9/3, Lyfjafræðingur 16/3, læknir 23/3 og Streita og slökun 30/3. 

Hér að ofan eru fastir vikulegir viðburðir.

Aðrir viðburðir í mánuðinum eru auglýstir sérstaklega hér fyrir neðan. Viðtöl  og djúpslökun eru bókuð fyrirfram, sjá síma og netfög hér að ofan. Við hvetjum fólk að koma við og fá upplýsingar um það sem í boði er og skrá sig á póstlista www.krabb.is         

Stuðnings- og fræðslufundir í mars

Fimmtudagur 1.mars Kl. 20.00-22.00 Stómasamtökin opið hús

Miðvikudagur 7.mars Kl. 17.00-18.00 Góðir hálsar: stuðningshópur um blöðruhálskirtilskrabbamein: Rabbfundur

Miðvikudagur 7.mars kl. 12.10-13.00 Hádegisfyrirlestur: “Njóttu augnabliksins.” Þorgrímur Þráinsson

Sunnudagur 11.mars kl. 15.00 Fræðslumyndin: “Þetta er svo lúmskt” endursýnd á RÚV. Í myndinni er fjallað um ýmsa þætti er varða krabbamein í ristli og endaþarmi ásamt viðtölum við fólk sem hefur greinst með þennan sjúkdóm og við fagfólk sem vinnur að greiningu og meðferð hans.

 
Þriðjudagur 13.mars kl. 18.00-19.00 Samvera fyrir Ekkjur og Ekkla. Húsið opnar kl. 17:30

 
Þriðjudagur 13.mars kl. 20.00-22.00  Styrkur opið hús

Miðvikudagur 14.mars kl. 17.00-18.00 Stuðningshópur um lungnakrabbamein opið hús

Fimmtudagur 15.mars kl.16.30-18.00 Örráðstefna um krabbamein í ristli

 
Miðvikudagur 21.mars kl. 12.10-13.00 Hádegisfyrirlestur: “Helstu krabbamein karla, einkenni – forvarnir.” Lára Sigurðardóttir læknir.

 
Fimmtudagur 22.mars kl. 12.10-13.00 Hádegisfyrirlestur um kynlíf og krabbamein. Jóna Ingibjörg.

   
Miðvikudagur 28.mars kl. 17.00-18.00 Stuðningshópur kvenna með eggjastokkakrabbamein. Rabbfundur


Forvarnir

  1. Þekkjum einkennni krabbameins
  2. Lifum heilbrigðu lífi







Skipta um leturstærð


Leit