Mikilvægi tómstunda.
Hvað við veljum að gera í frítímanum getur haft mikil áhrif á lífsgæði
en það er þó ekki meðfætt að nýta þennan tíma á jákvæðan og uppbyggjandi hátt.
Í erindinu verður fjallað um frítímann og mikilvægi þess að við nýtum hann vel.
Rýnt verður í rannsóknir og kenningar en einnig gefin góð ráð.
Vanda Sigurgeirsdóttir er lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands
þar sem hún starfar við námsbraut í tómstunda- og félagsmálafræðum.
Vanda er auk þess knattspyrnuþjálfari og hefur mikla reynslu af tómstundastarfsemi ýmiskonar.