Beint í leiðarkerfi vefsins.
Qi-gong ástundun verður í húsnæði Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins að Skógahlíð 8 í Reykjavík mánudaginn 27. maí 2013 kl. 11.30-12.00. Leiðbeinandi er Gunnar Eyjólfsson.
Hádegisfyrirlestur verður í húsnæði Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8, 1. hæð, mánudaginn 27. maí 2013 kl. 12:00-12:30. Lára G. Sigurðardóttir læknir og doktorsnemi segir frá niðurstöðum nýrrar rannsóknar um tengsl svefntruflana og blöðruhálskirtilskrabbameina meðal eldri karla sem tóku þátt í öldrunarrannsókn Hjartaverndar. Grein um rannsóknina birtist í maítölublaði bandaríska vísindaritsins Cancer Epidemiology, Biomarkers and Prevention.
Námskeið í hugrænni athyglismeðferð (HAM) fyrir fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þess hefst þriðjudaginn 28. maí 2013. Námskeiðið stendur í fjórar vikur og er á þriðjudögum kl. 14-16. Leiðbeinandi er Gunnjóna Una Guðmundsdóttir félagsráðgjafi. Skráning í síma 540 1912 og í tölvupósti (radgjof@krabb.is).
Qi-gong ástundun verður í húsnæði Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins að Skógahlíð 8 í Reykjavík miðvikudaginn 29. maí 2013 kl. 11.30-12.00. Leiðbeinandi er Gunnar Eyjólfsson.
Frestað hefur verið hádegisfyrirlestri sem vera átti í húsnæði Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8, 1. hæð, miðvikudaginn 29. maí 2013 kl. 12:00-12:50. Þar ætlaði Guðrún Einarsdóttir landfræðingur og kennari að segja frá býflugnarækt í garðinum heima.
RáðgjafarþjónustanSkógarhlíð 8105 Reykjavík
Forstöðumaður: Sigrún Lillie Magnúsdóttir
Sími: 540 1900Gjaldfrjáls sími: 800 4040 8004040@krabb.is